VIRK, Embætti landlæknis og Vinnueftirlit ríkisins bjóða upp á eftirmiðdagsfund með Christinu Maslach, prófessor við Berkleyháskóla í Kaliforníu, á netinu í dag, þriðjudaginn 26. maí, kl. 15.00. Linda Bára Lýðsdóttir, doktor í sálfræði og sviðsstjóri hjá VIRK, fer yfir stöðuna á Íslandi í byrjun fundarins sem verður streymt á vefsíðum stofnanna þriggja.

Dr. Christina Maslach er bandarískur sálfræðingur og prófessor (emerita) í sálfræði við Berkeley háskóla í Kaliforníu. Hún hefur unnið að rannsóknum á ýmsum sviðum innan félags- og heilsusálfræði en er þekktust fyrir að vera brautryðjandi í rannsóknum á vinnutengdri kulnun. Hún er meðhöfundur þess mælitækis sem mest er notað á sviði kulnunar Maslach Burnout Inventory (MBI), en það er til í fimm útgáfum sem henta mismunandi starfsstéttum.

Maslach hefur skrifað fjölmargar greinar og bækur um kulnun og hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir störf sín. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) notar skilgreiningu á kulnun í flokkunarkerfinu ICD-11 sem er í samræmi við skilgreiningu Maslach. Í nýjasta ársriti VIRK má finna grein eftir Dr. Maslach „Að finna lausnir á kulnunarvandanum“.

Eftirmiðdagsfundinum verður streymt á vefsíðum stofnanna þriggja, erindi Maslach verður á ensku. Áhorfendum mun gefast kostur á að senda inn fyrirspurnir með tölvupósti til fundarstjóra. Sjá viðburðinn á Facebook.

Eftirmiðdagsfundurinn 26. maí er fimmti fundurinn í fundaröð um heilsueflingu á vinnustöðum og er hluti af samstarfi VIRK, Embættis landlæknis og Vinnueftirlitsins um heilsueflingu og forvarnir á vinnustöðum. Markmið samstarfsins er að stuðla að betri heilsu og vellíðan vinnandi fólks á vinnustöðum, fyrirbyggja kulnun og minnka brottfall af vinnumarkaði.

Upptakan af streyminu af fundinum verður aðgengileg að fundi loknum.


Mynd: pixabay