Kung Pao kjúklingur
- 3-4 kjúklingabringur, skornar í munnbita
- Salt og pipar
- 1½ bolli maísmjöl
- 3 egg
- ¼ bolli canola olía
- ¼ bolli soja sósa
- ¼ bolli edik
- 1 matskeið rautt chillí paste (t.d. Sriracha)
- 1 tsk pressaður hvítlaukur
- ¼ bolli púðursykur
- ½ msk maísmjöl
- 1 rauð paprika, hökkuð
- ¼ bolli salthnetur
- vorlaukur til skrauts
Hitið ofninn í 180°.
Skerið kjúklinginn í munnbita og kryddið með salti og pipar. Setjið maísmjöl í eina skál og léttilega hrærð egg í aðra skál. Hitið olíuna á pönnu.
Veltið kjúklingnum upp úr maísmjölinu, síðan eggjunum og setjið hann að lokum á pönnuna. Steikið þar til kjúklingurinn er byrjaður að brúnast. Færið kjúklinginn þá af pönnunni yfir í eldfast mót.
Hrærið saman sojasósu, ediki, chillí paste, hvítlauk, púðursykri og maísmjöli. Hellið blöndunni yfir kjúklinginn og blandið vel. Setjið hakkaða papriku og salthnetur yfir. Bakið í klukkutíma en hrærið í réttinum á 15 mínútna fresti.
Berið fram með hrísgrjónum.
Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit