Kynning á breytingum á deiliskipulagi í Hólsdal og aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020–2032.

Miðvikudaginn 8. október verður haldið opið hús í Ráðhúsi Fjallabyggðar að Gránugötu 24, 2. hæð, milli kl. 15:00 og 17:00.

Þar verður skipulagsráðgjafi á staðnum til að veita upplýsingar og svara spurningum um tillögur að breytingum á deiliskipulagi í Hólsdal vegna Fljótaganga og breytingu á aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020–2032.

Að lokinni kynningu og eftir umfjöllun skipulags- og umhverfisnefndar verða tillögurnar auglýstar með að minnsta kosti sex vikna athugasemdafresti. Þá gefst öllum kostur á að koma á framfæri ábendingum og athugasemdum.