Félagsvísindastofnun hefur að beiðni félags- og húsnæðismálaráðuneytisins unnið greiningu á högum og líðan eldra fólks hér á landi. Helgi Guðmundsson, verkefnisstjóri hjá Félagsvísindastofnun, kynnir niðurstöður greiningarinnar á rafrænum fundi fimmtudaginn 10. apríl kl. 12:00-13:00. Fundurinn fer fram á Teams og er opinn öllum. Ekki er þörf á skráningu og einungis þarf að smella á þennan hlekk til að taka þátt: 

Könnunin var gerð frá 4. nóv til 10. des 2024. Um net- og símakönnun var að ræða. Spurt var um almennt heilbrigði, viðhorf til heilbrigðisþjónustu á Íslandi, aðstoð í daglega lífinu, heimaþjónustu, búsetuhagi, atvinnuhag, fjárhag, félagslega virkni, tölvuvirkni og fleira. 

Mynd/aðsend