Míla í samstarfi við Húnaþing vestra leggur ljósleiðara á Hvammstanga sumarið 2026. Framkvæmdaáformin eru auglýst á heimasíðu Mílu. Framkvæmdin er styrkt með átaki stjórnvalda um að klára ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026. Húnaþing vestra var eitt þeirra sveitarfélaga sem fékk styrk til framkvæmda.
Áformað er að framkvæmdir fari fram sumarið 2026. Nánari upplýsingar um tímasetningar veitir Míla.
Óski fyrirtæki eftir samstarfi í framkvæmdinni skal beina slíkri fyrirspurn til Mílu með tölvupósti á netfangið mila@mila.is samkvæmt þeim fresti sem tilgreindur er á heimasíðu Mílu til að tryggja að hönnun verkefnis geri ráð fyrir samnýtingu lagnaleiða innan framkvæmdartímans.




