Aflatölur Fjallabyggðarhafna fyrir árið 2025 liggja nú fyrir og sýna að heildarafli sem landað var í Fjallabyggð jókst lítillega frá árinu 2024. Aflaverðmæti hefur hins vegar aukist umtalsvert milli ára.

Á Siglufirði var landað alls 15.103 tonnum í 1.240 löndunum árið 2025, samanborið við 14.926 tonn í 1.266 löndunum árið 2024. Á Ólafsfirði nam landaður afli 64 tonnum í 114 löndunum árið 2025, en árið áður voru þau 135 tonn í 120 löndunum.

Samanlagt var því landað 15.167 tonnum í Fjallabyggð á árinu 2025, á móti 15.061 tonnum árið 2024.