Matvælatofnun hefur fengið upplýsingar frá Sláturfélagi Suðurlands um að fyrirtækið innkalli eina framleiðslulotu af soðinni lifrapylsu vegna þess að það fannst aðskotahlutur (málmflís) í vörunni. Fyrirtækið hefur í samráði við Matvælastofnun innkallað vöruna.

Eingöngu er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vöruheiti: Soðin lifrarpylsa.
  • Vörunúmer: 4490019
  • Lota: 03-033 (Síðasti notkunardagur: 04.03´26)
  • Framleiðandi: Sláturfélag Suðurlands svf, Fosshálsi 1, 110 Reykjavík
  • Verslanir: Verslanir um allt land.

Neytendur sem keypt hafa vöruna skulu ekki neyta hennar, farga eða skila henni í næstu verslun.

Mynd: mast.is