Með breytingu á barnaverndarlögum árið 2011 var þáverandi velferðarráðuneyti gert ábyrgt fyrir eftirliti með meðferðarheimilum Barnaverndarstofu.
Ráðuneytið skyldi fela óháðum sérfræðingi að heimsækja heimilin að lágmarki einu sinni á ári. Tekið er fram í lögunum að sérfræðingurinn skuli sérstaklega leitast við að gefa þeim börnum sem dvelja á þessum heimilum kost á að tjá sig um líðan sína og aðbúnað.
Eftirlit ráðuneytisins með meðferðarheimilum Barnaverndarstofu hefur frá þessum tíma byggt á Stöðlum fyrir vistun eða fóstur barna á vegum barnaverndaryfirvalda, 2. útgáfu frá 2011.
Við stofnun Gæða- og eftirlitsstofnunar félagsþjónustu og barnaverndar (GEF) árið 2018 var eftirlit ráðuneytisins flutt til GEF.
Meðferðarheimili Barnaverndarstofu eru í dag þrjú talsins: Laugaland í Eyjafjarðarsveit, Lækjarbakki í Rangárþingi ytra og Stuðlar í Reykjavík en þar er bæði meðferðardeild og neyðarvistun. Í árlegum heimsóknum hefur verið rætt við þau ungmenni sem eru á heimilinu á hverjum tíma, auk þess sem rætt er við forstöðumann og starfsmenn og símaviðtöl tekin við foreldra ungmennanna. Skýrslur með niðurstöðum eftirlits eru sendar Barnaverndarstofu og félagsmálaráðuneyti.