Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra auglýsir eftir vitni að atviki sem átti sér stað á skemmtistaðnum Vamos á Akureyri, aðfaranótt 29. maí sl. rétt fyrir kl. 3 um nóttina.

Vitnið sem leitað er að er kona með sítt hár og var hún klædd í kimono með blómamynstri. Hún var í samskiptum við konu og karlmann á efri hæðinni þegar atvikið sem til rannsóknar er átti sér stað.

Viðkomandi aðili sem kannast við sig í þessari lýsingu er vinsamlegast beðinn að hafa samband við Maríu Jespersen rannsóknarlögreglumann hjá lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra í síma 444-2800.