Neytendasamtökin hafa ítrekað bent sparisjóðsstjóra Sparisjóðs Strandamanna á að ólögleg smálánafyrirtæki þrífist í skjóli sjóðsins, en sparisjóðurinn veitir innheimtufyrirtækinu Almennri innheimtu ehf. aðgang að greiðslumiðlunarkerfi bankanna. Þrátt fyrir það berast skjólstæðingum samtakanna ennþá innheimtukröfur vegna ólöglegra lána í gegnum sparisjóðinn.

Almenn innheimta ehf. hefur þann eina starfa að innheimta ólögleg smálán í gegnum reikning Sparisjóðs Strandamanna (bankanúmer 1161). Hefur Almenn innheimta, eigandi þess og lögmaður ítrekað hlotið ítrekaðar aðfinnslur og áminningar lögmannafélagsins (sjá t.d. hér ) vegna þessarar innheimtustarfsemi. Eftir ábendingar Neytendasamtakanna hafa stærri fjármálafyrirtæki úthýst innheimtufyrirtækinu og vita samtökin ekki til þess að nokkurt íslenskt fyrirtæki eigi í dag viðskipti við Almenna innheimtu eða hin alræmdu smálánafyrirtæki.

Neytendasamtökin hafa nú kallað eftir svörum frá nýrri stjórn Sparisjóðs Strandamanna um það hvort stjórnin muni sýna samfélagslega ábyrgð í verki og segja upp viðskiptum við Almenna innheimtu ehf. eða hvort Sparisjóður Strandamanna muni áfram leggja sitt að mörkum til að tryggja að skipulögð brotastarfsemi smálánafyrirtækja fái viðgengist hér á landi.

Mynd/Neytendasamtökin