Lokað er í Skíðasvæðinu í Skarðsdal á Siglufirði í dag, föstudaginn 13. febrúar, vegna veðurs. Í tilkynningu frá svæðinu kemur fram að þar sé nú blindbylur og ekki veður til vinnu eða annarra athafna uppi á svæðinu.

Stefnt er að því að opna klukkan 10:00 í fyrramálið, laugardag, ef veður leyfir.

Um leið og hefðbundin opnun fer fram verður haldið bikarmót í alpagreinum í Skarðsdalnum um helgina. Keppt verður í svigi og stórsvigi og má búast við líflegri stemningu á svæðinu.

Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg stendur fyrir mótinu á vegum Skíðasamband Íslands fyrir keppendur á aldrinum 12 til 15 ára. Um er að ræða stórt og metnaðarfullt mót þar sem um 90 keppendur hafa þegar skráð sig til leiks og má því búast við hörkukeppni næstu daga.

Sjá einnig: „Langt síðan haldið var mót af þessari stærðargráðu á Siglufirði“, segir Hjalti hjá SSS

Samkvæmt veðurspá stefnir í stillt vetrarveður á Siglufirði laugardaginn 14. febrúar. Gert er ráð fyrir suðaustan 5 metrum á sekúndu, skýjuðu veðri og um 7 stiga frosti um miðjan dag. Vindur verður því hægur en kuldinn gæti bitið, sérstaklega hjá áhorfendum sem standa lengi kyrrir við brautina. Að öðru leyti líta aðstæður út fyrir að geta orðið ágætar til keppni ef spáin gengur eftir.

Allt bendir því til þess að skíðafólk og gestir geti átt góða helgi í Skarðsdal, að því gefnu að veðrið haldi sér í skefjum.

Hvetjum alla til að mæta og fylgjast með stjörnum framtíðarinnar á svigbrautinni í Skarðsdal.

Lokað í Skarðsdal í dag en bikarmót í alpagreinum fer fram um helgina

Myndir: Facebook / Skíðasvæðið Skarðsdal Siglufirði