Samþykkt var á fundi bæjarstjórnar Akureyrarbæjar í síðustu viku að slíta vinabæjarsamstarfi við Múrmansk í Rússlandi og að Akureyrarbær segi sig úr Northern Forum samtökunum sem eru að stærstum hluta samtök sveitarfélaga í Rússlandi. 

Áður hafði verið fjallað um málið í bæjarráði en ályktun bæjarstjórnar er þessi: Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að taka undir bókun bæjarráðs, sem fordæmir innrás rússneskra stjórnvalda í Úkraínu og samþykkir þess vegna að slíta vinabæjarsamstarfi við Múrmansk. Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að Akureyrarbær segi sig úr samtökunum Northern Forum.