Lögreglan vill vekja athygli á stafrænum foreldrafundi sem haldinn verður á morgun miðvikudaginn 23.11.2022 kl. 12:00-13:00.

Lögreglan stendur fyrir fundinum í samvinnu við Barnaheill, 112, SAFT, Heimili og skóla, Inhope Ins@fe og Fjölmiðlanefnd.

Fundurinn er opinn öllum og foreldrar sérstaklega hvattir til þess að fjölmenna. Fundurinn er eingöngu á netinu og verða kynnt praktísk ráð fyrir foreldra um stafræna miðla, notkun þeirra og úrræði vegna stafrænna brota.

Fundurinn hefst á kynningum og svo fylgja á eftir lifandi pallborðsumræður þar sem foreldrum á netinu verður jafnframt gert kleift að spyrja spurninga.

Þessi stafræni foreldarfundur er hluti af aðgerðum ríkislögreglustjóra gegn stafrænu ofbeldi gegn börnum í samræmi við samkomulag þess efnis við stjórnvöld.

Meðal annarra aðgerða er vitundavakning meðal ungmenna í 8. bekk grunnskóla um stafrænt ofbeldi og gildi samþykkis í stafrænum og kynferðislegum samskiptum. Sérstakt fræðsluefni hefur verið útbúið fyrir nemendur í 8. bekk, auk þess sem kennsluleiðbeiningar og upplýsingar fyrir foreldra eru gerð aðgengileg á íslensku, ensku og pólsku.