Veist þú um einhvern eða einhverja sem þér finnst hafa skarað framúr, staðið sig einkar vel fyrir bæinn þinn, gert góðverk eða framið gjörning sem kallar á að fá tilnefninguna maður ársins 2018 í Ólafsfirði eða á Siglufirði?
FM Trölli og Trölli.is ætla að tilnefna mann ársins 2018.
Tilnefndur verður maður ársins á Siglufirði annars vegar og maður ársins í Ólafsfirði hins vegar.
Tilkynnt verður hverjir verða fyrir valinu á FM Trölla í þættinum Tíu Dropum 30. desember, einnig mun það birtast á vefnum Trölli.is.
Ykkur gefst kostur á að senda ábendingar um mann ársins hér fyrir neðan.
Engu skiptir af hvaða kyni maður ársins er, hér eru allir jafnir.
Hægt er að senda tilnefningu: Hér
Mynd: pixabay