Málæði, annað árið í röð.  Í ár var það lag eftir Emilíu Írisi, nemanda í 10. bekk sem var valið til frekari vinnslu ásamt tveimur öðrum lögum annarsstaðar af landinu. 

Málæði er skapandi keppni á vegum verkefnisins List fyrir alla, þar sem nemendum alls staðar af landinu gefst kostur á að senda inn eigin tónverk og texta. Emelía Íris samdi lagið og tvo texta sem hún sendi inn í keppnina en Guðni Þór í 9. bekk aðstoðaði Valda við upptökur á laginu til innsendingar.

Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór mun flytja lagið þann 16. nóvember á RÚV . Mánudadaginn 13. október kemur hann ásamt Vignir Snæ í grunnskólann ásamt tökuliði frá RÚV og forsvarsmönnum Málæðis. Þau munu vinna með Emelíu Írisi að laginu og taka það upp til útgáfu. Auk þess mun hópur nemenda úr Húsbandinu og tónlistarskólanum taka þátt í verkefninu og leggja sitt af mörkum við að búa til endanlega útgáfu af laginu. Hér er því um að ræða einstakt tækifæri fyrir nemendur til að vinna með reynslumiklum listamönnum og kynnast skapandi ferli tónlistarframleiðslu með áþreifanlegum hætti.  Þetta er alvöru 🙂

Í fyrra var það lagið Hringiða eftir Húsbandið sem valið var til þátttöku. 

Valdimar Gunnlaugsson kennari við tónlistarskólann hefur unnið að verkefninu með krökkunum bæði árin og haldið vel utan um það eins og árangurinn sýnir. 

Myndir/Húnaþing vestra