Matvælastofnun varar við neyslu á Amy´s Kitchen grænmetislasagna vegna aðskotahlutar (málmbita) sem fannst í vörunni. Fyrirtækið Einstök matvæli ehf. hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Amy’s Kitchen
- Vöruheiti: Vegetable Lasagne – Gluten Free
- Nettómagn: 255 g
- Strikanúmer: 0042272003747
- Lotunúmer: 30-K269
- Best fyrir lok: Nóvember 2021
- Geymsluskilyrði: Frystivara
- Innflytjandi: Einstök matvara ehf., Lambhagavegi 13, 113 Reykjavík
- Dreifing: Verslanir Hagkaupa, Heimkaup, Fjarðarkaup, Melabúðin og verslanir Nettó.
Mynd: MAST