Matvælastofnun varar við tiltekinni lotu af hundanamminu Super foods for dogs: Chicken treats with sweet potato, carrot & pumpkin frá Irish Dog Food vegna málmflísa sem kaupandi fann í vörunni. Costco flytur vöruna inn og selur í verslun sinni.

Matvælastofnun gerði kröfu um sölustöðvun og innköllun. Eftir ítrekun hefur Costco nú tekið vöruna úr sölu en ekki innkallað vöruna frá kaupendum skv. upplýsingum stofnunarinnar. 

Málmflísar í fóðri geta valdið skaða m.a. í meltingarfærum dýra. Ekki er nóg að stöðva sölu að mati stofnunarinnar og þarf einnig að upplýsa kaupendur. Hundaeigendur sem keypt hafa hundanammið úr eftirfarandi framleiðslulotu eru hvattir til að nota það ekki: 

  • Vöruheiti: Super foods for dogs: Chicken treats with sweet potato, carrot & pumpkin
  • Vörumerki: Irish rover
  • Lotunúmer: J320311 
  • Best fyrir dagsetning: 05/04/22 
  • Framleiðandi: Irish dog food 
  • Innflytjandi: Costco 
  • Dreifing: Verslun Costco