Matvælastofnun varar við tiltekinni lotu af Billys Pan Pizza vegna málmstykkis sem fannst í vörunni. Fyrirtækið Innnes flytur inn pítsuna og dreifir henni í verslanir um allt land. Fyrirtæki hefur innkallað vöruna með aðstoð Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.

Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Billys
  • Vöruheiti: Pan Pizza Peperoni
  • Best fyrir dagsetning: 09.06.2021
  • Strikamerki: 7310960718116
  • Nettómagn: 170g
  • Geymsluskilyrði: Frystivara
  • Framleiðandi: Gunnar Dafgård AB
  • Framleiðsluland: Svíþjóð
  • Innflytandi: Innnes ehf., Korngörðum 2, 104 Reykjavík
  • Dreifing: Bónus og Hagkaup um land allt, Krónan um land allt, Krambúðin, Kjörbúðin og Nettó um land allt, Extra í Keflavík, Akureyri og Barónstíg, Heimkaup, Hlíðarkaup, Fjarðarkaup, Þín Verslun, Verslunin Rangá, Kríuveitingar, N1 Nesti Hringbraut, Skerjakolla ehf, Albína, Kaupfélag Skagfirðinga, Góður Kostur, Verslunin Urð og Verslun Kassans á tímabilinu 6.11.2020 – 19.01.20.