Markaðsstofur landshlutanna setja upp kaupstefnuna Mannamót fyrir samstarfsfyrirtæki sín í dag, 16. janúar 2020.

Viðburðurinn verður haldinn í Kórnum í Kópavogi . Eftirspurn ferðaþjónustufyrirtækja sem vilja vera með bás á sýningunni hefur aldrei verið meiri en alls verða 270 fyrirtæki með bás. Þá hafa að meðaltali um 800 gestir komið á sýninguna síðustu ár.

Mannamót markaðsstofanna er kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni. Tilgangurinn er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á höfuðborgarsvæðinu. Ísland hefur mikið upp á að bjóða og Mannamót hjálpa til við að mynda tengsl innan ferðaþjónustunnar. Gestum á Mannamóti gefst kostur á kynna sér það sem mismundi landshlutar eru að bjóða uppá með áherslu á vetrarferðamennsku.

Meða þeirra fyrirtækja á Norðurlandi sem kynna starfsemi sína á Mannamóti eru ásamt mörgum fleirum:

Bjórböðin
Ferðamálafélag Hríseyjar
Ferðaþjóunustan á Hólum
Félag ferðaþjónustunnar í Skagafirði
Fjallabyggð
Gauksmýri
Hótel Laugarbakki
Kaffi Klara
KIDKA
Segull 67
Selasetur Íslands/Seal Travel
Selasigling
Spákonuhof Skagaströnd

Listinn í heild sinni, flokkaður eftir landshlutum er hér.



Mannamót er haldið af Markaðsstofum landshlutanna í samstarfi við flugfélagið Erni og Isavia.

Nánar má lesa um viðburðinn á www.markadsstofur.is