Gerður hefur verið samstarfssamningur Vegagerðar, Samgöngustofu og Ríkislögreglustjóra um sjálfvirkt hraðaeftirlit með löggæslumyndavélum.

Markmið samningsins er að fækka banaslysum og alvarlega slösuðum í umferðinni með markvissu hraðaeftirliti á völdum stöðum á þjóðvegum landsins.

Helstu nýmæli eru að framvegis verður hægt að nýta myndavélar til að sinna meðalhraðaeftirliti á þjóðvegum, en unnið hefur verið að undirbúningi þess á undanförnum árum. Slíkur búnaður hefur verið settur upp og prófaður, m.a. á Grindavíkurvegi og Norðfjarðarvegi. Meðalhraðamyndavélar verða komnar í gagnið á næstu mánuðum.

Samningurinn er gerður á grundvelli umferðaröryggisáætlunar sem er hluti af samgönguáætlun fyrir árin 2020-2034.

Lögreglustjóraembættið á Vesturlandi sér um umsýslu og úrvinnslu gagna úr myndavélum í umboði Ríkislögreglustjóra. Vegagerðin greiðir á samningstímanum ígildi tveggja stöðugilda á ári til að annast verklega framkvæmd við úrvinnslu sekta og kostnað vegna tæknimála, samtals að hámarki 15 milljónir króna á ári.

Sjá nánar á vef Stjórnarráðsins

Mynd: Vegagerðin