Eyrarrósin, viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins, var afhend í átjánda sinn í dag, miðvikudaginn 3. maí, við hátíðlega athöfn á Hvammstanga.
Frú Eliza Reid forsetafrú og verndari Eyrarrósarinnar afhenti verðlaunin.
Menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði hlýtur viðurkenninguna að þessu sinni.
Hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar 2023 hlutu: Alþjóðleg píanóhátíð á Vestfjörðum, Vesturbyggð, Hnoðri í norðri, Akureyri og Raddir úr Rangárþingi, Hellu.
Eyrarrósin er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Byggðastofnunar og Icelandair.

Myndir/Listahátíð í Reykjarvík