Á síðasta fundi sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar sem haldinn var þann 15. júní sl. samþykkti sveitarstjórn samhljóða með 7 atkvæðum tillögu Fræðsluráðs að Menntastefnu Dalvíkurbyggðar fyrir árin 2021-2026.
Sveitarstjórn færði vinnuhópnum, starfsfólki skólanna og samfélaginu þakkir vegna vinnu og aðkomu að stefnunni.
Nýsamþykkta Menntastefnu Dalvíkurbyggðar má finna hér.