Miðvikan á Trölli FM fer í loftið í dag , miðvikudaginn 29. apríl kl.13:00.

Andri Hrannar kemur sér vel fyrir í stúdíói 2 sem staðsett er á Gran Canaria og mun hann gera sitt besta frá kl. 13:00 til 15:00 að íslenskum tíma.

Þátturinn einnig í mynd á Twitch.

Andri býður hlustendum í óvissuferð, sérstaklega þeim sem eru á leið heim frá vinnu, en allir aðrir eru líka velkomnir.

Hlustið á Miðvikuna á FM Trölla á miðvikudögum kl. 13:00 – 15:00.

FM Trölli er á FM 103.7 MHz á Tröllaskaga og á Hvammstanga og nágrenni.

Einnig má hlusta á netinu, hér á trolli.is, í Spilaranum t.d. í Apple TV og ýmsum nýrri sjónvarpstækjum, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com