Miðvikan snýr aftur á FM Trölla Útvarpsþátturinn Miðvikan með Andra snýr aftur í loftið á FM Trölla í dag, miðvikudag, eftir stutt hlé. Þátturinn verður í beinni útsendingu frá klukkan 13 til 15 eins og áður.
Miðvikan hefur verið fastur liður í dagskrá stöðvarinnar þar sem Andri spilar fjölbreytta tónlist og spjallar við hlustendur í léttum og afslöppuðum tón úr stúdíóinu.
Undanfarnar vikur hefur verið hlé á þættinum vegna persónulegra aðstæðna, en nú er Andri aftur mættur við hljóðnemann og býður hlustendur velkomna í Miðvikuna.
Hlustendur geta fylgst með þættinum í beinni útsendingu á FM Trölla í dag frá klukkan 13 til 15.
Þátturinn einnig í mynd á Twitch.
FM Trölli er á FM 103.7 MHz á Tröllaskaga og á Hvammstanga og nágrenni.
Einnig má hlusta á netinu, hér á trolli.is, í Spilaranum t.d. í Apple TV og ýmsum nýrri sjónvarpstækjum, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com




