Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa
sunnudagurinn 18. nóvember
Sunnudaginn 18. nóvember verður þeirra minnst sem látist hafa í umferðarslysum á Íslandi. Efnt verður til þessarar athafnar í sjöunda sinn við þyrlupall bráðamóttöku Landspítalands og er hliðstæð athöfn víða um heim að tilhlutan Sameinuðu þjóðanna.
Minningarathöfn
Einingar á landsbyggðinni eru hvattar til þess að sameinast um þennan viðburð með öðrum viðbragðsaðilum sé þess kostur.
Klukkan 11:15 er boðað til mínutu þagnar og eru allir sem hafa þess kost hvattir til að taka þátt í því.
Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa Sunnudaginn 18. nóvember verður þeirra minnst sem látist hafa í umferðarslysum á Íslandi. Efnt verður til þessarar athafnar í sjöunda sinn og er hliðstæð athöfn víða um heim að tilhlutan Sameinuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember þessari minningu. Um það bil 4.000 einstaklingar láta lífið og hundruð þúsunda slasast í umferðinni í heiminum á degi hverjum. Enn fleiri þurfa að takast á við áföll, sorgir og eftirsjá af völdum þessa. Segja má að allir upplifi með einum eða öðrum hætti afleiðingar umferðarslysa. Vart er til sá einstaklingur sem þekkir ekki einhvern sem lent hefur í alvarlegu slysi í umferðinni. Minningarathöfn Athöfn verður við þyrlupall bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi í Reykjavík sem hefst klukkan 11:00 og eru allir velkomnir að koma og taka þátt. Klukkan 11:15 er boðað til mínutu þagnar og eru allir sem hafa þess kost hvattir til að taka þátt í því. Á þessum degi er vert að leiða hugann að minningu þeirra sem látist hafa í umferðinni og íhuga þá ábyrgð sem hver og einn ber.
Dagurinn er ekki aðeins tileinkaður minningu látinna í umferðinni heldur hefur skapast sú venja hér á landi að heiðra þær starfsstéttir sem sinna björgun og aðhlynningu þegar umferðarslys verður. Eru þessum starfsstéttum færðar þakkir fyrir mikilvægt og óeigingjarnt starf þeirra. Gert er ráð fyrir að ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar lendi á þyrlupalli bráðamóttökunnar rétt fyrir athöfnina og verður ökutækjum viðbragðsaðila stillt upp við þyrluna. Má þar nefna lögreglubíla og bifhjól, sjúkrabíla, slökkviliðsbíla, björgunarsveitarbíla og fleiri.
DAGSKRÁ:
10:45 Þyrla Landhelgisgæslunnar lendir við spítalann.
11:00 Stjórnandi athafnarinnar setur samkomuna.
11:05 Samgöngu – og sveitarstjórnarráðherra flytur ávarp og segir frá tilefni dagsins.
11:15 Mínútu þögn.
11:16 Þóranna Sigurbergsdóttir segir sögu sína en hún missti son sinn, Sigurjón Steingrímsson, aðeins 17 ára gamlan í umferðarslysi á Reykjanesbrautinni árið 1996. Sigurjón hefði orðið 40 ára þennan dag, 18. nóvember. 11:26-11:30 Stjórnandi segir athöfninni formlega lokið.
11:30 Þátttakendum boðið til kaffis í bílageymslu bráðamóttökunnar.