Mennta- og barnamálaráðherra úthlutaði nýlega styrkjum til að efla samstarf og nýsköpun á vettvangi íslenskunnar sem annars tungumáls. Tæplega 200 milljónum var úthlutað til 17 aðila til að styðja við nýjungar í íslenskunámi innflytjenda og ná til fjölbreyttari hópa með nýju námi, aðferðum eða verkfærum sem gera á aðgengileg öllum.
Úthlutunin byggir á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að innflytjendur fái tækifæri til að læra íslensku og taka virkan þátt í samfélaginu. Hún byggir jafnframt á menntastefnu 2030 og á þingsályktun um aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu fyrir árin 2024-2026.
Leitað var til m.a. þeirra sem starfa beint með innflytjendum eftir nýjum hugmyndum sem vinna ætti í samstarfi ólíkra aðila og miðla áfram sem víðast. Öflugt samstarf var því eitt af þeim skilyrðum sem varð að uppfylla til að fá styrk og því verða nú til ný samstarfsnet sem efla íslenskuna þvert á skólastig, sveitarfélög, stofnanir og aðila vinnumarkaðarins.
Styrkirnir voru auglýstir lausir til umsóknar á vef ráðuneytisins í agúst þar sem tilgreind voru skilyrði og áherslusvið. Tengja þurfti samstarfsverkefnin við a.m.k. einn meginmarkhóp innflytjenda þar sem talin er sérstök þörf á nýjum nálgunum. Alls barst 51 umsókn. Ákveðið var að styrkja 17 umsóknir sem allar fólu í sér áhugavert samstarf og fróðlegar nýjungar sem ættu að geta farið í almenna dreifingu. Eftirfarandi verkefni hlutu styrk:
| Heiti verkefnis: | Umsækjandi: | Samstarfsaðili/-ar | Styrkupphæð |
| Tengsl og tunga. Íslenska í verki | Eirð Náttúruhús | Nýsköpunarsetrið við Lækinn, Vinnumálastofnun | 3.300.000 |
| Gefum íslensku tíma | Hafnarfjarðarbær | Mímir símenntun, Íslenskuþorpið | 8.185.000 |
| Inngildingarbrú milli háskólans og vinnumarkaðar | Háskóli íslands | Vinnumálastofnun | 9.570.000 |
| Skólaorðaforði fyrir erlenda foreldra- samtalskvöld með stuðningi | Rauði krossinn við Eyjafjörð | Menntaskólinn á Akureyri, VMA, Akureyrabær, | 4.740.000 |
| Samtal og samfélag- íslenska í daglegu lífi | Farskólinn- Miðstöð símenntunar á NV | Aldan stéttarfélag | 6.000.000 |
| Íslenskuvæn fyrirtæki- Tungumálastefna og fyrirmyndarverkefni fyrir stóra og smáa vinnustaði | Mímir símenntun | ASÍ, Samtök fyrirtækja í velferðaþjónustu, Mýrdalshreppur, SA, FA,, SAK, Grund hjúkrunarheimili | 18.018.000 |
| ÍSAN- íslenska til inngildingar | Fjölbrautaskólinn í Breiðholti | Menntaskólinn á Ísafirði, Menntavísindasvið HÍ | 31.692.894 |
| Grunnspor- leið að námi og samfélagsþátttöku ungs fólks af erlendum uppruna | Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum | Reykjanesbær | 5.410.125 |
| Lært í gegnum leikinn- íslenskuspil fyrir börn og foreldra | Heimili og skóli, landssamtök foreldra | Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar | 5.000.000 |
| Bara tala í framhaldsskólum | Bara tala ehf. | Verslunarskóli íslands, Tækniskólinn, Framhaldsskólinn á Húsavík, Verkmenntaskóli Austurlands | 25.000.000 |
| Umönnun á íslensku- Efling íslenskukunnáttu og menningarfærni á Blend deildum Landspítalans | Múlti kúltí ehf. | Landakot, bráða- lyfja- og endurhæfingardeild | 3.189.000 |
| Íslenskumót: Tenging, tungumál og tækifæri | Menntaskólinn á Ísafirði | Tækniskólinn | 8.855.000,00 |
| Virkni og íslenskunám einangraðra kvenna af erlendum uppruna | Sveitarfélagið Árborg | Fræðslunet Suðurlands | 1.436.000 |
| Saman í málinu- íslenskukennsla foreldra barna í frístundastarfi | Þekkingarnet Þingeyinga | Norðurþing, Völsungur | 6.525.000 |
| Mín Rödd: að efla íslenskukunnáttu, menningar- og samfélagslæsi ungra innflytjenda | Framvegis | Fjölsmiðjan á höfuðborgarsvæðinu | 7.990.000 |
| Læsi er lykillinn að lýðræði | Dósaverksmiðjan | Vinnumálastofnun, FÁ og Hafnarfjarðarbær | 26.000.000 |
| Áfram íslenska- lykilinn að samfélaginu | Via Nostra ehf. | Brimsalir, Framhaldsskólinn á Tröllaskaga, Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Fjallabyggð | 28.080.000 |
| Alls | 198.991.019 |



