Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, afhenti verðlaun Erasmus+ fyrir framúrskarandi skólastarf og fyrir nýsköpun í tungumálakennslu á Nauthóli í síðustu viku.
Menntaskólinn á Tröllaskaga hlaut verðlaunin í flokki skólastarfs fyrir verkefnið The Sustainable Development Goals in All Aspects of School Life – A Democratic Society in Practice, sem dregur fram hvernig lýðræðisleg vinnubrögð og markmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun geta verið hluti af daglegu skólastarfi.
Dósaverksmiðjan – Tungumálaskólinn ehf. hlaut verðlaunin í flokki tungumálakennslu fyrir verkefnið Læsi er lykill að lýðræði – Menntun án aðgreiningar, sem sýnir hvernig tungumálakennsla og læsi geta verið lykill að virkri þátttöku og jöfnum tækifærum í samfélaginu.
Stapaskóli hlaut viðurkenningu fyrir eTwinning verkefni ársins 2025 á Íslandi fyrir verkefnið Ink of Unity – Celebrating our True Colors. Verkefnið var unnið í samstarfi við skóla víða um Evrópu og sneri að því að efla skapandi tjáningu, samvinnu og gagnkvæma virðingu meðal nemenda með sameiginlegum listrænum verkefnum. Ink of Unity fangar kjarnann í eTwinning – að efla alþjóðavitund, fjölmenningu og samskiptahæfni ungs fólks og í þessu tilviki er þetta gert í gegnum list og tungumál.
Auk þess hlutu kennarar frá Stapaskóla, Selásskóla, Ingunnarskóla og Stóru-Vogaskóla gæðaviðurkenningar eTwinning fyrir vel unnin verkefni sem sýna fram á fagmennsku, frumkvæði og árangursríka notkun á eTwinning til alþjóðlegs samstarfs og skapandi náms.
Ágúst Hjörtur Ingþórsson forstöðumaður Rannís og Eydís Inga Valsdóttir, verkefnastjóri eTwinning á Íslandi, afhentu eTwinning viðurkenningarnar og verðlaunin. Rannís og Landskrifstofa Erasmus+ standa að Evrópsku nýsköpunarverðlaununum í kennslu og eTwinning gæðaviðurkenningum.
„Það er ánægjulegt að sjá þann mikla sköpunarkraft sem býr innan skólakerfisins. Ég óska verðlaunahöfum til hamingju með þessa viðurkenningu á mikilvægu framlagi til skólastarfs á Íslandi, framlag sem er til eftirbreytni,“ segir Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra.
Mynd/aðsend



