Nýlega voru sendar út tvær rafrænar kannanir til félagsmanna Einingar- Iðju, sem voru í íbúð eða í orlofshúsi sl. sumar, þar sem verið er að kanna upplifun þeirra á viðkomandi stað.

Svör sem fást munu hjálpa til við að vita viðhorf félagsmanna til þeirra orlofshúsakosta sem í boði eru með það fyrir augum að bæta starfsemina.

Mjög góð svörun hefur verið síðustu ár og hafa margar ábendingar og hrós borist til félagsins og því var ákveðið að vera með eins könnun í ár. Vonast er til að félagsmenn, sem fengu tölvupóst með slóð á kannanirnar, gefi sér sem fyrst nokkrar mínútur til að svara.

Hægt er að svara þessum könnunum til og með sunnudagsins 16. október nk.

Öll svör eru órekjanleg, ekki er óskað eftir persónuupplýsingum í þessari könnun. 


Mynd: af ein.is