Greinarhöfundur lenti á jólaspjalli við Baldvin Einarsson einn af eigendum Saga Fotografica ljósmyndasögusafnsins á Siglufirði og þá nefnir hann að hann hafi nýlega heimsótt eldri herra sem heitir Sigurður B Jóhannesson sem vildi gefa skemmtilega muni á safnið.

Samtímis nefnir Sigurður sem er mikill ljósmyndaáhugamaður að hann hafi heimasíðu sem heitir Photosbj.is og að þar séu um 30 ljósmyndir frá Siglufirði sem eru teknar um 1960.

Undirritaður síldarsögunörd gat náttúrulega ekki still sig og skoðar þessa gömlu heimasíðu og á henni er ljósmynda fjársjóður með myndum frá síldarævintýri á Raufarhöfn 1953 – 1962, Siglufirði um 1960 og í lokin nokkrar frá Vopnafirði sem eru teknar 1965.

Þar fyrir utan er fjöldin allur af  flottum myndum sem Sigurður hefur tekið víðsvegar á ferðum sínum um okkar fallega land.

Undirritaður fékk leyfi frá Sigurði að birta þessar Siglufjarðar myndir hér á Trölla og ég mæli eindregið með því að þið kíkið á þessa heimasíðu áður en hún hverfur af netinu.

Takk Sigurður fyrir að varðveita þessar minningar.

En nú látum við myndirnar tala sínu eigin máli.

Sjá einnig grein um Saga Fotografica hér: SAGA-FOTOGRAFICA GEYMIR MERKA SÖGU

 

Siglufjörður um 1960

 

Siglufjörður um 1960

 

Siglufjörður

 

Guðfinnur Einarsson frá Bolungarík með myndavélina

 

Siglufjörður

 

Siglufjörður

 

Siglufjörður

 

Siglufjörður

 

Söltunarplan með þaki.

 

Líklega við Hrímisplanið

 

Líklega við Hrímisplanið

 

Siglufjörður

 

Siglufjörður

 

Nýung í söltunarbúnaði. Eftir hausskurð var síldinni kastað í blikkskúffuna og síðan sturtað í bjóðið yfir salthólfið.

 

Siglufjörður

 

Síldarsöltun við Hafnarbryggjuna. Ljósmyndarinn hefur greinilega klifrað upp í löndurnarkrana

 

Síldarsöltun við Hafnarbryggjuna.

 

Siglufjörður, Guðbjörg IS 14.

 

Siglufjörður, Margrét SI ??

 

Siglufjörður,SR-46, virkilega flott mynd

 

Siglufjörður, löndunarkranar

 

Torgið séð frá Suðurgötu, mörg horfin hús á þessari mynd.

 

Útskipun

 

Stúfun

 

Í lest

 

Flutningaskip

 

Dýpkun

 

Efnarannsóknastofa SR, þar sem Saga Fotografica er til húsa í dag við Vetrarbraut 17.

 

Efnarannsóknastofa SR

 

Efnarannsóknastofa SR

 

Kær kveðja.

Nonni Björgvins

LISTA YFIR AÐRAR GREINAR EFTIR JÓN ÓLAF BJÖRGVINSSON FINNUR ÞÚ HÉR.

Ljósmyndir: Sigurður B Jóhannesson photosbj.is

TEXTI :
JÓN ÓLAFUR BJÖRGVINSSON