Iðkendur Tennis og Badmintonfélags Siglufjarðar stóðu sig afar vel á Unglingameistaramóti TBR sem fram fór um helgina. Yfir 160 keppendur tóku þátt í mótinu, þar af rúmlega 50 frá Færeyjum, og sendi félagið átta keppendur til leiks. Keppt var í öllum greinum í aldursflokkum U13 til U19.
Árangur TBS var eftirtektarverður. Adríana Diljá varð tvöfaldur meistari í U13, þar sem hún sigraði bæði í einliðaleik og tvíliðaleik ásamt Lilju frá Badmintonfélagi Hafnarfjarðar. Þá hafnaði hún í öðru sæti í tvenndarleik með Kára, einnig frá BH.
Marínó Örn átti einnig frábært mót og sigraði einliðaleik í U13, auk þess sem hann vann tvíliðaleik ásamt Baldri frá TBR. Marínó og Kamilla Maddý náðu síðan öðru sæti í tvenndarleik í U15 flokki.
Sebastían Amor og Kamilla Maddý komust bæði í undanúrslit í sínum einliðaleikjum, Sebastían í flokki U17 til U19 og Kamilla í U15. Þá komust Alda Máney og Hilmar frá BH í undanúrslit í tvenndarleik í U15.
Aðrir keppendur félagsins, Björgvin, Guðjón og Guðrún, stóðu sig einnig vel á mótinu og náðu í sumum greinum alla leið í undanúrslit í aukaflokkum.
Næsta verkefni hjá unglingum félagsins er Unglingamót Aftureldingar sem fram fer dagana 14. og 15. febrúar.
Myndir: facebook / TBS – Tennis og Badmintonfélag Siglufjarðar












