Í dag verður Þátturinn Tíu Dropar sendur út frá Kanarí, kl 13.00 – 15.00 GMT.

Það eru „Tröllahjónin“ Kristín Magnea Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári Helgason sem stjórna þættinum og að þessu sinni verður útsendingin frá Syðri-Glaumbæ, en svo kallast hellir þeirra hjóna á Gran Canaria.

Þau spjalla um allt mögulegt og ómögulegt milli himins og jarðar, fara yfir fréttir vikunnar á trolli.is og leika lög úr ýmsum áttum.

Í dag verða leikin ný lög víða að og uppskrift vikunnar verður á sínum stað.

Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla á sunnudögum kl. 13. FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum trolli.is.

Á síðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á síðunni eða hér: Hlusta

Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is