Út er komið nýtt lag með Countess Malaise. Lagið nefnist Hit It og kemur brasilíska tónlistakonan LYZZA fram í laginu ásamt Countess Malaise.

Um Countess Malaise

Dýrfinna Benita er rappari sem hefur komið fram undir alter egóinu Countess Malaise. Hún hefur unnið með mörgum öðrum listamönnum, þar á meðal hljómsveitinni CYBER og Lord Pusswhip. Hún sendi frá sér plötuna HYSTERÍA í október 2019 sem inniheldur 8 lög, öll samin af Dýrfinnu og aðallega pródúseruð af Lord Pusswhip, ásamt Mutant Joe og Zgjim á tveimur lögum. 

Dýrfinna hefur aldrei farið troðnar slóðir í tónlistar- og listsköpun, og ber platan þess sérstaklega merki. Coverið á plötunni er mynd af henni þar sem búið er að maska út kynfæri og geirvörtur en það minnir á það þegar fólk lendir í síunni á samfélagsmiðlum þar sem þessir líkamspartar sjást, þó ekki sé í kynferðislegum tilgangi og er sett í bann í framhaldi.

Heiti lags:: Hit It
Útgefandi:: Alda Music ehf.
Höfundur lags og texta:: Dýrfinna Benita Basalan, f. 1992

Lagið á Spotify