Laufskálarétt í Hjaltadal verður haldin í dag, laugardaginn 30. september og hefst kl 13:00.

Öllum er heimilt að taka þátt í stóðrekstrinum en knöpum er bent á að leggja af stað frá áningarhólfi hestamanna við Sleitustaði og frá Laufskálarétt ekki seinna en kl 10:00. Rekstrarstörf hefjast ca. kl 11:30 frá afréttarhliðinu við Unastaði í Kolbeinsdal.

Stóðrekstrarstjóri er Ólafur Sigurgeirsson á Kálfsstöðum og Bergur Gunnarsson á Narfastöðum hefur yfirumsjón með réttarstörfum.