Grunnskóli Fjallabyggðar bendir foreldrum og forráðamönnum barna á að vefsíðan og gagnabankinn Námsfjallið er kominn í loftið. Vefsíðan er ætluð öllum nemendum í grunnskólum.

Síðan er enn í vinnslu og verður það áfram, sem þýðir að um lifandi vef er að ræða þar sem nýtt námsefni verður lagt þar inn reglulega. Lögð er áhersla á lestur, ritun og sköpun. Í gagnabankanum er að finna sniðug verkefni, hugmyndir, smáforrit og fleira og er öllu efni skipt niður í yngsta-, mið-, og elsta stig grunnskóla.
Á vefnum er hægt að fá og sækja hugmyndir og skapandi verkefni í mörgum fögum.
Vefurinn er einnig hugsaður fyrir foreldra og forráðamenn með heimanám í huga eða til að skapa gæðastundir með nemendum.

Nú þegar margir nemendur og foreldrar eru að vinna heima geta þeir nýtt sér þessa vefsíðu til að sækja námsefni og eða hugmyndir. Nemendur geta skipulagt daginn sinn sjálf með því að hanna sína eigin dagskrá (hana er hægt að finna inn í námsefni – sköpun).

Allir eru hvattir til þess að kíkja á þessa frábæru vefsíðu, gefa sér tíma til þess að skoða hana og auðvitað prófa!

Sérstaklega er mælt með snjall lestrinum og lestrarbingó, sem er að finna í Námsefni-Lestur.

Smelltu HÉR til þess að fara inn á vefsíðuna Námsfjallið.