NÁMSKEIÐ Í ÞRÍVÍDDARPRENTUN
Dagana 13. og 14. júní verða haldin tvö námskeið í þrívíddarprentun í tæknismiðjunni á neðri hæð félagsheimilisins á Hvammstanga.
Á námskeiðunum verður farið yfir grunnþætti þrívíddarprentunar. Kennt verður á einfalt forrit til að hanna og búa til ýmsa hluti. Einnig verður kennt hvernig á að nota prentarann og allt sem honum fylgir.
Skipulag námskeiðanna:
Föstudagurinn 13. júní: 17:00 – 21:00. Matarhlé frá 18:30 – 19:30
Laugardagurinn 14. júní: 13:00 – 17:00. Kaffihlé frá 14:30 – 15:30
Námskeiðið kostar 10.000 kr. og hámarksfjöldi er 10 hvorn dag.