Átta stúlkur úr 9. og 10. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar, ásamt Guðrúnu og Gyðu, fóru til Hankasalmi í Finnlandi mánudaginn 5. maí.
Þar dvöldu þær hjá finnskum nemendum og fjölskyldum þeirra, kynntust skólastarfi og daglegu lífi í Finnlandi.
Sænskir nemendur tóku einnig þátt í verkefninu, sem byggðist á sameiginlegum lestri bókarinnar Ósýnilega barnið úr sögum Múmínálfanna. Nemendur unnu saman fjölbreytt verkefni út frá bókinni.
Ferðin heppnaðist vel og var lærdómsrík.
Sjá myndir: HÉR
Mynd/Grunnskóli Fjallabyggðar