Síðasta vika var miðannarvika í Menntaskólanum á Tröllaskaga. Í þeirri viku vinna kennarar að námsmati en nemendur sitja tveggja eininga áfanga sem að þessu sinni snerist um að útbúa og talsetja vandað lesefni fyrir börn.
Í tilkynningu frá Menntaskólanum á Tröllaskaga kemur fram að markmið áfangans var m.a. að vekja nemendur til meðvitundar um mikilvægi þess að búa vel að íslenskukennslu fyrir nýja íbúa samfélagsins, án þess að útiloka íslensk börn, og stuðla að auknum skilningi á hlutverki tungumáls í námi, samskiptum og samfélagslegri þátttöku. Var vinnu vikunnar einnig ætlað að stuðla að því að nemendur upplifðu að verk þeirra hafi tilgang og gildi utan skólastofunnar og þeir geti tekið þátt í að efla læsi, aðgengi og inngildingu í samfélaginu.
Nemendur unnu með myndskreyttar stuttar sögur með enskum texta, þýddu efnið yfir á íslensku þar sem lögð var áhersla á skýrt, einfalt og lifandi mál sem hentar börnum. Nemendur leiklásu síðan sögurnar þannig að úr urðu myndbönd sem líkjast lesinni barnabók. Nemendur skiluðu frábærri vinnu og til urðu tæplega 40 myndbönd. Eftir lokafrágang verða þau gerð aðgengileg á netinu svo foreldrar og börn geta notið saman. Henta þau sérstaklega vel foreldrum sem ekki hafa tök á að lesa fyrir börnin sín á íslensku.
Til að meta hvernig til hefði tekist fékk Menntaskólinn á Tröllaskaga góða gesti í heimsókn á fimmtudeginum. Elstu börnin frá leikskólanum Leikhólum á Ólafsfirði komu í skólann og horfðu og hlýddu á afrakstur vinnunnar. Börnin sýndu verkefnunum mikinn áhuga, fylgdust vel með og virtust kunna vel að meta sögurnar, sérstaklega þegar leiklesturinn var líflegur. Þeim fannst einnig mjög spennandi að geta horft á myndböndin síðar heima með mömmu og pabba.
Það voru fulltrúar frá Via Nostra sem sáu um skipulag og kennslu í miðannarvikunni, líkt og á síðustu önn.
Á föstudeginum fóru nemendur inn á Akureyri þar sem farið var í klifur í hinni glæsilegu aðstöðu hjá 600klifur og síðan á skauta í Skautahöllinni. Á báðum stöðum sýndu nemendur glæsileg tilþrif og allir skemmtu sér vel eins og myndirnar bera með sér.
Videó
Hér má sjá tvö sýnishorn af afrakstri vikunnar.
Vináttugjöf hins vingjarnlega höfrungs
Þakkláta stjarnan
Myndasafn
Fleiri myndir frá föstudeginum, þegar nemendur fóru inn á Akureyri, má sjá hér.
Myndir: mtr.is / GK


















