Samherji kynnir í samstarfi við Rigg viðburði, Fiskidaginn Mikla, Samskip, Exton og Björgunarsveit Dalvíkur:

Fiskidagstónleikarnir 2019 verða haldnir sem fyrr við hafnarsvæðið á Dalvík 10. ágúst nk. Hljómsveit Rigg viðburða leikur undir hjá þjóðþekktum söngvurum sem flytja sín vinsælustu lög í útsetningum Ingvars Alfreðssonar.

Gestgjafar eru heimamennirnir Friðrik Ómar, Eyþór Ingi og Matti Matt.

Gestasöngvarar Fiskidagstónleikana 2019 eru:
Svala, Valdimar, Auður, Páll Óskar, Sigga Beinteins, Grétar Örvarsson, Hr. Hnetusmjör, Þorgeir Ástvaldsson, Eyjólfur Kristjánsson og Bjartmar Guðlaugsson.

Í kjölfar tónleikana verður glæsileg flugeldasýning.

Allir hjartanlega velkomnir.

 

Hljómsveitarstjórn: Ingvar Alfreðsson

Dansar: Birna Björnsdóttir

Hljóð: Haffi Tempó

Lýsing: Helgi Steinar

Grafík: Pálmi Jónsson

Verkefnastjórn Exton: Steinar Snæbjörnsson

Verkefnastjórn Rigg: Haukur Henriksen

Sviðsetning og yfirumsjón: Friðrik Ómar

 

Fréttatilkynning