Út er komið jólalagið “Frá borg sem nefnist Betlehem”.

Flytjandi eða flytjendur kalla sig Norðurljósin, en þar fer Magni Ásgeirs fremstur meðal jafningja.

Lagið er í grunninn “God rest ye merry gentlemen” sem er þjóðlag en inn í það fléttast “Carol of the bells” eftir Mykola Leontovych.

Textinn er eftir Hinrik Bjarnason og þýðingin á Carol eftir Guðlaug Gunnarsson. 

Ný og skemmtileg útgáfa sem nú þegar er komin í spilun á FM Trölla.