Á 99. fundi hafnarstjórnar Fjallabyggðar sem haldinn var 22. ágúst má finna eftirfarandi bókun.

Þegar dýpkað var við Bæjarbryggju (Hafnarbryggju) 2016 urðu nokkrir toppar eftir og var því ekki hægt að gefa út dýptarkort í 9 metra heldur aðeins 8,5. Þetta hefur haft þau áhrif að einhver skemmtiferðaskip hafa ekki viljað leggja að bryggjunni.

Nú stendur okkur til boða að fá Jan De Nuul sem sá um dýpkunina síðast til þess aðkoma og fjarlægja þessa toppa og fá í framhaldi útgefið dýptarkort niður á 9 metra. Kostnaðarskipting vegna dýpkunar er 60% Vegagerðin og 40% Fjallabyggðarhafnir.

Hafnarstjórn leggur til við bæjarráð að gengið verði til samninga við Jan De Nuul vegna dýpkunar við Bæjarbryggju.

 

Frétt: Fjallabyggð
Mynd: Kristín Sigurjónsdóttir