Lengi hefur verið skortur á hleðslustöðvum fyrir rafbíla í Dalvíkurbyggð.

Loksins horfir til betri vegar en í hádeginu á föstudaginn s.l. var opnuð ný hleðslustöð við Olís á Dalvík. Það er fyrirtækið Ísorka sem sá um uppsetningu og rekstur á hleðslustöðinni í samstarfi við Olís.

Hleðslustöðin er af tegundinni 150Kw Alpitronic Hypercharger en hún hefur 2x CCS tengi og geta því tveir bílar hlaðið í einu, stöðin er með báðar tegundir af hraðhleðslutengjum og geta því allir rafbílar hlaðið á stöðinni.

Dalvíkurbyggð fagnar þessu framtaki gríðarlega og telur þetta mikilvægt skref til framtíðar.