Akureyrarbær hefur hafið vinnu við gerð deiliskipulags sem nær yfir svæði ofan byggðar og efstu byggðu lóðir í nyrðri hluta þéttbýlis Hríseyjar. Innan svæðisins eru núverandi parhúsalóðir við Miðbraut 3-5, 7-9 og 11-13 auk Gamla skólans eða Barnaskólans. Þá er einnig innan skipulagssvæðisins íþróttasvæði og áhaldahús/athafnasvæði norðan Hjallavegar. Stærð skipulagssvæðisins um 8 ha. Viðfangsefni deiliskipulagsins er m.a. að skoða möguleika á nýjum íbúðar- og athafnalóðum og þéttingu byggðar á svæðinu, í samræmi við ákvæði sem eiga við um svæðið í gildandi aðalskipulagi.

Nú liggur fyrir skipulagslýsing þar sem fram kemur hvaða áherslur bæjarstjórn hefur við skipulagsvinnuna, upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu, fyrirhugað skipulagsferli og hvernig kynningu og samráði verður háttað.

Lýsinguna má nálgast hér.

Íbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að kynna sér skipulagslýsinguna og senda inn ábendingar í gegnum Skipulagsgátt eða bréfleiðis til Skipulagssviðs í Ráðhúsi Akureyrar, Geislagötu 9.

Frestur til að senda inn ábendingar er út 19. mars 2025.

Afmörkun skipulagssvæðisins