Í dag verður Þátturinn Tíu dropar í beinni útsendingu, kl 13.00 – 15.00.

Það eru „Tröllahjónin“ Kristín Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári sem stjórna þættinum.

Þátturinn verður sendur út beint frá Siglufirði.

Við hringjum í Jón Ólaf Björgvinsson – “Nonna Björgvins” í tilefni þess að í gær birtum við grein eftir hann á Trölli.is sem vakið hefur mikla athygli og hann nefnir: “Vafasöm-síldarsögu-sagnfræði ? Copy & paste bókmenntir.”

Þau Tröllahjón spjalla auk þess um allt á milli himins og jarðar, fara yfir fréttir og spila létt lög.

Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla á sunnudögum kl. 13. FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga og í Skagafirði, 102.5 á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim á vefnum trolli.is

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta efst á síðunni eða hér: Hlusta

Minnum sjómenn og aðra með dýr eða takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is