Kef LAVÍK gaf út nýtt lag í vikunni sem nefnist VICE CITY BABY og er þriðja smáskífan af væntanlegri plötu sem kemur út í ágúst.

Lagið verður leikið á FM Trölla í þættinum Tíu Dropar sem er á dagskrá á sunnudögum kl. 13 – 15.

Kef LAVÍK gaf út lagið Strobe ásamt JóaP í febrúar.

Í maí á síðasta ári gaf kef LAVÍK út fjögurra laga EP plötuna Heim eftir 3 mánuði í burtu. Platan var fyrsta útgáfa þeirra sem gefin er út á vegum Öldu Music.

Kef LAVÍK eru þeir Einar Birkir Bjarnason og Ármann Örn Friðriksson og hafa þeir gefið út fimm plötur í fullri lengd.

VICE CITY BABY á Spotify

Aðsent