Allir helstu fjallvegir fyrir norðan eru lokaðir vegna ófærðar, óveðurs eða fastra bifreiða.
- Öxnadalsheiði kl. 09:03. Vegurinn er á óvissustigi vegna veðurs og gæti lokað með stuttum fyrirvara.
- Vatnsskarð kl. 06:43. Vegurinn er lokaður þar sem bílar þvera veg.
- Þverárfjall kl. 06:42. Vegurinn er lokaður vegna veðurs.
- Ólafsfjarðarmúli kl. 06:42. Vegurinn er lokaður vegna snjóflóðahættu.
- Siglufjarðarvegur kl. 06:42. Vegurinn er lokaður vegna snjóflóðahættu.
Nauðsynlegt að fylgjast með veðri og færð áður en haldið er af stað á vefsíðum Veðurstofunnar og Vegagerðarinnar.
Mynd/skjáskot af vefsíðu Vegagerðarinnar.