Matvælastofnun varar þá við sem eru með ofnæmi eða óþol fyrir súlfít á neyslu á kanil frá TRS Asia´s finest foods sem Lagsmaður ehf. flytur inn til landsins. Fyrirtækið hefur með aðstoð heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar, Garðarbæjar og Kópasvogs, innkallað vöruna og sent út fréttatilkynningu.
Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um matvæli og fóður.
Innköllunin á við um allar framleiðslulotur og best fyrir dagsetningar.
- Vörumerki: TRS Asia’s finest foods
- Vöruheiti: TRS cinnamon powder 100g
- Lotunúmer/best fyrir: Lota 2020210 með best fyrir dagsetningu 31.7.2023
- Innflytjandi: Lagsmaður ehf.
- Upprunaland: Kína
- Drefing: Verslun Fiska.is, Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogur
Neytendur sem keypt hafa vöruna er bent á að hægt sé að skila henni og fá endurgreitt í versluninni á Nýbýlavegi 6 í Kópavogi.
Ítarefni
- Fréttatilkynning Lagsmaður ehf.
- Fréttatilkynning Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar, Garðarbæjar og Kópavogs
- Listi Matvælastofnunar yfir innkallanir
- Leiðbeiningar Matvælastofnunar um merkingu á ofnæmis- og óþolsvöldum