ÞRÍR KALDIR MÁNUÐIR Í RÖÐ
Þessi októbermánuður stefnir í það að verða kaldur um land allt segir Einar Sveinbjörnsson á facebooksíðu sinni.
Hitinn stefnir ía að erða markvert undir meðallagi. Það er sem nemur a.m.k. einu staðalfráviki undir 30 ára meðaltalinu, 1991-2020.
Þar með verður þetta þriðji mánuðurinn í röð bæði í Reykjavík og á Akureyri sem telst markvert kaldur. Ágúst var meira en einu stigi kaldari en í meðalári og september tæpum tveimur stigum.
Þeir skiptast nú nokkuð á alla jafnar kaldir og hlýir mánuðir og nánast meðalmánuðir í hita inn á milli. Þannig eru sveiflurnar. En að fá nú þrjá þetta kalda mánuði í röð er heldur mikið að mínu mati.
Það er ekki hending að þeir raðist svona saman, heldur hefur veðrið haft ýmis einkenni kuldatíðar mest allan þennan tíma reyndar allt frá því um 20. júlí.
Á háloftakortum birtist að jafnaði skarpt drag yfir landinu frá 1. ágúst. Því hafa fylgt tíðar N-átt og hitinn í um 1.200 til 1.300 m hæð (850 hPa) hefur verið um 1,0 til 1,5°C undir meðallagi að jafnaði. Slíkur kuldi þarna uppi skilar sér til jarðar!
SÍÐUSTU 12 MÁNUÐIR
Í Reykjavík hafa 5 af síðustu 12 mánuðum (frá nóv 2023) verið markvert kaldir. 3 til viðbótar heldur minna kaldir og enginn mánaðanna síðasta árið telst vera markvert hlýr. Síðasti þess konar mánuður í Rvk var ágúst í fyrra.
Á Akureyri Teljast 7 af síðustu 12 mánuðum hafa verið markvert kaldir. 2 hins vegar markvert hlýir (maí og júlí).
Nú þegar þrír dagar eru eftir af þessum mánuði stefnir í að októberhitinn á Akureyri verði sá lægsti í meira en 40 ár (frá 1981). En eins og ævinlega spyrjum við að leikslokum!