Fasteignamiðlun kynnir eignina Ólafsvegur 5, 625 Ólafsfjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 215-4225 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Ólafsvegur 5 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 215-4225, birt stærð 172.9 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.

Sjá myndir: HÉR

Um er að ræða einbýlishús á einni hæð með stórum blómlegum garði, steyptum palli og bílskúr. Eignin samanstendur af tveimur inngöngum, eldhúsi, stofu/borðstofu, baðherbergi, 4 svefnherbergjum, þvottahúsi, gestasalerni, stórri geymslu með aðgangi út í garð og sérútbúnu herbergi inn af geymslu. Þak eignarinnar hefur verið endurnýjað og hiitalagnir settar í steypt bílastæði. Garður er stór með steyptum palli og timbur skjól vegg. Geymsluskúr 12m2 er í garði.

Anddyri: er með flísum á gólfi og stórum fataskápum.
Eldhús: er með viðarinnrétting með ljósri borðplötu og kork á gólfi. 
Stofa: liggur saman með borðstofu og er með ljósu teppi á gólfi og panel á hluta af vegg. 
Baðherbergi: er með frístandandi sturtuklefa, baðkari, upphengdu klósetti, innréttingu og vask. Flísar eru á hluta af vegg og gólfi. 
Svefnherbergi: eru fjögur mismundandi stór. Einu herbergi var skipt upp í tvö með léttum vegg. Auk þess er möguleiki á að nýta herbergi inn af geymslu sem svefnherbergi. 
Gangur: er með panel á veggjum með útgang út á steyptan pall og garð.  
Þvottahús: er með steyptu máluðu gólfi, inréttingu og hilluplássi. Opnanlegur gluggi er í þvottahúsi. 
Annar inngangur: er með flísum á gólfi og fatahengi. 
Gestasalerni: er með gólftengdu klósetti og vaski. Flísar eru á gólfi. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.