Snældan heimaþjónusta er ný samþætt þjónusta fyrir eldri borgara í Húnaþingi vestra, staðsett í eldri hluta Sjúkrahússins á Hvammstanga. Þjónustan sameinar heimastuðning, heimahjúkrun, dagdvöl og matarþjónustu – allt á einum stað – með það að markmiði að veita sveigjanlega, einstaklingsmiðaða þjónustu fyrir þá sem ekki geta séð alfarið um daglegt líf sitt.
Nú er búið að gera upplýsingar aðgengilegri á heimasíðu Húnaþings vestra og hér.
Þjónustuframboð Snældunnar:
- Heimastuðningur: Aðstoð við heimilishald, innkaup, erindagjörðir og félagslegur stuðningur.
- Heimahjúkrun: Lyfjaumsjón, baðaðstoð, heilsufarseftirlit og stuðningur við daglegt líf.
- Dagdvöl: Félagslegur stuðningur, afþreying, hádegismatur og þjálfun. Akstur til og frá staðnum í boði.
- Matarþjónusta: Matur borinn út á Hvammstanga og Laugarbakka eða borinn fram í matsal sjúkrahússins.
Snældan er hluti af þróunarverkefninu Gott að eldast, sem miðar að því að tryggja eldra fólki samfellda og samhæfða þjónustu á þeirra eigin forsendum. Þar starfa einnig tengiráðgjafi og sjúkraþjálfari í heimaendurhæfingu, sem vinna að því að draga úr félagslegri einangrun og efla sjálfstæði notenda.