Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Lumpiang Shanghai Mix – Fried springroll seasoning mix kryddblöndu sem fyrirtækið Dai Phat Trading inc ehf. flytur inn.
Varnarefnið etýlen oxíð fannst í vörunni en það er óheimilt að nota það í matvælaframleiðslu í Evrópu. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Tilkynning um vöruna barst til Matvælastofnunar í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli og fóður.
Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Mama Sita‘s
- Vöruheiti: Lumpiang Shanghai Mix – Fried springroll seasoning mix
- Best fyrir dagsetning: 22.11.2022
- Strikamerki: 4804888804998
- Nettómagn: 40g
- Framleiðandi: Marigold Manufacturing Corporation
- Framleiðsluland: Filippseyjar
- Innflytandi: Dai Phat Trading inc. ehf., Faxafeni 14, 108 Reykjavík.
- Dreifing: Oriental Super Market (Dai Phat Trading inc ehf.), Faxafeni 14, 108 Reykjavík.
Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í verslun Dai Phat gegn endurgreiðslu.